Warszawianka 1905 roku [Варшавянка; La Varsovienne; ¡A las barricadas!]
Autori Vari / Different Authors / Différents Auteurs1z1. Varsjá-söngurinn - Versione alternativa islandese (1931) 1z1. V... | |
WARSHAWJANKA Við sem að enn eigum þrek til að þreyta þróttmikið stríð móti skorti og neyð, tókum við byrðum af bræðrum sem féllu blóðgan í valinn, en ruddu oss leið. Heyr stormurinn þýtur, stundin er komin, stormurinn boðar oss frelsins vor. Æskunnar hetjur við hrynjandi söngva hugdjarfar ganga í feðranna spor. Heyr stormurinn þýtur, stundin er komin, stormurinn boðar oss frelsins vor. Æskunnar hetjur við hrynjandi söngva hugdjarfar ganga í feðranna spor. Svo þegar skeið vort að sköpum er runnið skýlir oss jörðin, vor orrustuslóð. Fáninn sem reis yfir feðranna draumi fylkir til orrustu sigrandi þjóð. Heyr stormurinn þýtur, stundin er komin, stormurinn boðar oss frelsins vor. Æskunnar hetjur við hrynjandi söngva hugdjarfar ganga í feðranna spor. Heyr stormurinn þýtur, stundin er komin, stormurinn boðar oss frelsins vor. Æskunnar hetjur við hrynjandi söngva hugdjarfar ganga í feðranna spor. | Varsjá-söngurinn 1. Uppreisnin breiðist svo ótt yfir landið. Upp, upp til vopna, þú kúgaða stétt. Skyldan, hún kallar til orustu alla, afl móti valdi, þá sigrum við létt. Við eigum frelsis ólgandi elda, upphefjum blóðrauða fánann með dáð. Verkamenn, fylkist nú féndunum móti, fram, nú skal síðasta orustan háð. Allslausi múgur, engu átt' að tapa, öðru en hlekkjum, þín lausn er þitt starf. Bráðum skal öreigans alræði drottna, þá er okkar tími að bæta vorn arf. 2. Sultur og neyð hefur nagað oss alla. Níðingsins þjóðfélag bráðum er nár, Brjótið þið nú hina bölvuðu hlekki. Blóðhefndin ein getur læknað vor sár. Með lífinu höfum við hugsjónir goldið, sem hefja til frelsis hinn kúgaða lýð. Fram því i vigið, sjá fánunum blæðir, fram, rauði herinn er búinn í stríð. Allslausi múgur, engu átt' að tapa, öðru en hlekkjum, þín lausn er þitt starf. Bráðum skal öreigans alræði drottna, þá er okkar tími að bæta vorn arf. |