Lingua   

Um grimman dauða Jóns Arasonar

Megas
Lingua: Islandese


Megas


Jón Arason var kaþólskur segja sannfróðir
og siðskiptin taldi hann hin verstu mál
og hann orti vísur til ungra og sætra stelpna
sem hann unni ásamt guði og páfa af lífi og sál.

Og hann hafði segja þeir einnar minnstar mætur
á Marteini saurnum Lúter og hyski hans
ef einhver er til sem ábyggilega er helgaður
þá er það Marteinn – grillspjóti andskotans.

En þeir sörguðu af honum hausinn herra minn trúr
herjans þrælarnir gömlum og sonum hans tveimur
ó það liggur svo berlega í augum uppi Snati minn
hve átakanlega vondur hann er þessi heimur.



Pagina principale CCG

Segnalate eventuali errori nei testi o nei commenti a antiwarsongs@gmail.com




hosted by inventati.org