Lingua   

Betri heimur

Óðmenn
Lingua: Islandese


Óðmenn


Við, við viljum betri heim
þar sem mannleg samskipti eru metin mest

Hversvegna getur mannskepnan aldrei lært
af þeim mörgu blóðfórnum sem hún hefur fært
já, hversvegna alltaf sömu mistökin
hvers virði er þá mannsheilinn
ef við lærum ekki neitt af eigin afglöpum

Margar þjóðir stæra sig af menningu
vísindum listum og góðri lífsafkomu
en einmitt þær gerast sekar um það
að misnota þá möguleika sem þeir guma af
og hvers virði er menningin ef hún er engum til góðs

Bræður, systur reynum að bæta okkar heim
tökum höndum saman gerum hvort öðru ei mein
reynum fyrst og fremst að bæta innri mann
svo hjálpi hver þeim er minna kann
því það er hin vísa leið til að bæta eigin heim

Við, við viljum betri heim
þar sem mannleg samskipti eru metin mest.



Pagina principale CCG

Segnalate eventuali errori nei testi o nei commenti a antiwarsongs@gmail.com




hosted by inventati.org